Home
Húsmóðir í Vesturbænum

> recent entries
> calendar
> friends
> profile
> previous 20 entries

Advertisement

Monday, May 24th, 2004
8:46 pm
er enn að reyna að setja tengill á nýja rafrausið mitt, er svo ólærð í þessum fræðum....
http://blog.central.is/husmodir/index.php

(comment on this)

8:42 pm
rafrausið mitt hefur skipt um stað:

(comment on this)

8:41 pm - rafrausið mitt hefur skipt um stað

(comment on this)

8:21 pm - Súkkulaðifórnin
Fyrsti dagur í súkklaðileysi... mun ég halda það út? Skelfing, skelfing, ósköp og eymd. Þetta gengur bara ekki meir, mig munar greinilega um þetta sem mér finnst mér ekkert muna um. Vigtin lýgur ekki og ef talan fer hækkandi þá fer súkkulaði og annað slikkerí fækkandi. Svoleiðis er það bara. Kannski ef ég skrifta og kvarta og kveina nógu mikið hér þá fæ ég útrás og vonast eftir samúð og skilning.
Að fórna súkkulaðinu ó svei, það er ekkert sem kemur í staðinn fyrir súkkulaðið í lífi mínu, ekkert sem kemur fyrir hið ómótstæðilega, unaðslega bragð, ó vei og svei...

(comment on this)

Thursday, May 6th, 2004
10:52 am
Stundum er ég svo ánægð með það sem ég skrifa að ég les það aftur og aftur.

(3 comments | comment on this)

Thursday, April 29th, 2004
9:38 am
Maður heldur alltaf áfram. Er það ekki?

(comment on this)

Wednesday, April 28th, 2004
12:17 pm
Sólin skín aftur, frábært! og ég sit inni að læra, líka frábært! Alveg að verða búin með önnina og get þá farið að gera ýmislegt annað sem hefur ekki mátt taka pláss á meðan að á námstímanum stendur. Styttist líka í Londonferðina með bóndanum, er í flughræðsluþerapíu hjá sála, sem reyndar virkar!!! Það er annað hvort það eða fara aldrei aftur til útlanda og það bara get ég ekki. Ég elska að ferðast (með lest) og fara á gamlar og nýjar slóðir, eyða peningum og bara vera til.

(comment on this)

Monday, April 19th, 2004
8:46 am
Stundum held ég að ég sé einhver annar en ég er, að langi til þess að vera eitthvað sem ég sé og hrífst af, sit síðan með samviskubit yfir því að gera ekki einmitt þetta sem ég held að sé ég. Hugsa að ég sé rétt núna að átta mig á því að jeppaferðir eru ekkert fyrir mig! Eða öllu heldur ferðir upp á hálönd um miðjan vetur þegar maður getur bara setið heima hjá sér, jú reyndar finnst mér gaman að renna mér á snjóþotu og skíðum endrum og eins, en að brölta þetta í nokkra daga og þurfa að pissa í trekt!!! Liggur ofar mínum skilningi. (Þetta er skrifað í tilefni af Dagsljósmola sem sýndur var milli dagskrárliða í sjónvarpinu í gær. Þar voru svaka hressar og kraftmiklar konur í jeppaferð, án karla, uppi á hálendinu einhversstaðar).
Nú þarf ég að klára verkefnið í málnotkun...

(2 comments | comment on this)

Sunday, April 18th, 2004
8:34 am
Gaukur fótbrotnaði í gærkvöldi þegar hann og Þorgrímur (sonur minn) vora að vrestla á grasinu, hann er í gifsi frá tám og upp í nára... æjts!

(comment on this)

Saturday, April 17th, 2004
3:49 pm
Dásamlegt, ég kann að uppfæra rafrausið annars staðar en heiman frá mér, ótrúlegt hvað mér fer fram rafrænt séð. Og er að gera þetta í vinnunni! Búið að vera ótrúlega mikið að gera, eiga háskólanemar ekki að vera búnir að gera verkefnin sín núna? Og nota tímann til þess að lesa undir próf? Eða eru allir of seinir eins og vant er?
Kom klukkutíma of seint í vinnuna, fannst eins og ég ætti að mæta 10 eins og venjulega en var á skiptivakt og átti því að mæta 9, skildi ekkert í því afhverju Alex var ekki á sínum stað og afgreiðslan auð! Höfum lítið stutt hvor aðra, hún á djamminu til kl.05 og ég fór að sofa kl.03...
Í kvöld koma tvíburarnir og gista hjá Palla, það má aldrei vanta einn strák (Þorgrímur fór með Gauk í bústað um helgina),heldur fleiri en færri.

(comment on this)

Friday, April 16th, 2004
8:00 am
Í dag er versta veður sem til er; sólin skín og kallar á mann út, maður hleypur út léttklæddur með vorvon í brjósti, en hvað gerist? Um leið og maður stígur út á tröppurnar grípur kuldinn mann og herpir mann saman og maður hrökklast inn, sneyptur og sár. Dregur niður gluggatjöldin og bíður eftir 17. júni.

(comment on this)

Thursday, April 15th, 2004
11:16 am - Lær dómur
Sit og er að læra, gera verkefni, ekki ólíkt því sem nánast allir háskólanemar á landinu er að gera þessa stundina. En hvar er einbeitingin? Ekki laðar og lokkar veðrið það er nokkuð ljóst. Rúmið? já alltaf gott að kúra með bók eða útvarpi Sögu (búin að því reyndar), eldhúsið? jú þar er ansi mikið sem lokkar, bleikar kökur og nammi og fleiri afgangskræsingar frá því á páskum og eftir afmælið mitt þann 13. s.l.

Hvað er nú Ósama að pæla, ætlar að vera góður við Evrópu en ekki USA? Og hvað er Bush að pæla, ég meina eru þetta ekki vitibornar verur uppi á 21. öldinni? Æ, hvílík vitleysa. Ég verð þreytt bara við það að reyna að hugsa um þetta. Þá vil ég frekar hugsa til baka til bleiku afmælisveislunnar minnar:

Afmæli! Það er skylda hvers borins manns að halda með einhverjum hætti upp á afmæli sín. Maður lifir bara einu sinni og á bara afmæli einu sinni á ári. Hef komist að þessari niðurstöðu eftir að hafa sleppt því að fagna hækkandi aldurstölu s.l. tvö ár vegna anna og próflesturs, en nú skal breyting á verða og á næsta ári verð ég meira að segja fertug!! Best að byrja að plana strax.

(5 comments | comment on this)

Thursday, April 8th, 2004
9:18 am - Blogg samskipti
Hef átt mín fyrstu blogg samskipti og þau voru mjög jákvæð.
Finnst svolítið skrýtið að nálgast fólk á þennan hátt. Hefja spjall við einhvern sem maður myndi kannski ekki annars tala við eða, æ þetta er bara nýtt fyrir mér.

Skírdagur, veisla í dag og hinn og hinn og hinn svo frí og svo risa veisla hinn, hinn, hinn, hinn, enda á ég þá afmæli :)

(comment on this)

Tuesday, April 6th, 2004
12:47 pm
Vann ekki í Lottó, en óvænt, hvað skyldu margir hafa búist við því að vinna? Mér var hinsvegar bent á það að til væri atvinnuleysisbætur sem gætu bjargað mér ef í harðbakkann slær.
Var að tala við Ágústu kennara um lokaverkefni og hún tók vel í að halda áfram með grafskriftirnar, jibbí! Alla vega að gera úr því sem eftir er einhverra eininga verkefni, annars verð ég að finna eitthvað annað að sýsla við og fylla hillur þriðjuhæðar hlöðunnar með.

(comment on this)

Saturday, April 3rd, 2004
8:37 am
Skólinn næstum því að verða búinn, á bara eftir að mæta einu sinni enn í málnotkun og svo búið. Blendnar tilfinningar sem fylgja annarlok eins og venjulega. Á samt eftir að sakna mest Frásagnartækninnar, lang skemmtilegustu tímar sem ég hef sótt. Tómlegt á fimmtudaginn þegar engar sögur duttu inn um átlúkkið.
Svo er komið á daginn að ég get ekki fengið námslán til þess að skrifa lokaverkefnið mitt í sumar, vegna þess að ég útskrifast ekki fyrr en sumar 2005, ætti í raun einingalega að útskrifast í febrúar 2005 en vegna þess að ég vil endilega vera í ritlist þar sem hvert námskeið tekur alltaf heilan vetur þá er það svona. :( æi, alltaf einhver auravandræði, en ef plönin manns ganga ekki alltaf upp þá er það bara svo. Enga vinnu að fá á gamla vinnustaðnum mínum heldur, ætti ég kannski að stofna eigið? Hugmyndir vantar svo sem ekki, nokkrar krónur bara til þess að koma þessu af stað. Kannski vinn ég í Lottó í kvöld ha ha ha

(comment on this)

Monday, March 29th, 2004
3:09 pm
Íslendingar! - hættið að klappa á milli atriða á danssýningum og leiksýningum – ömurlegt og pínlegt, algjör stemmningsbrjótur. Fór á Lúnu í gærkvöldi með Hjördísi vinkonu og skemmti mér vel, góð stemmning í salnum (fyrir utan milliatriða klöppin)og fjör á sviðinu, frábær tónlist og lifandi dansar. Seinna verkrið var ekki síðra, fyrir utan að þar var ekki lifandi tónlist. Kona um sjötugt, sem sat við hliðina á mér, ætlaði sundur að hristast úr hlátri þegar strákarnir (karlkyns dansararnir) voru að troða sér í rauða tjullkjóla og dansa eins og ballerínur. Mæli með þessu.

(comment on this)

Friday, March 26th, 2004
3:22 pm
Bíómyndin sem ég er, TARZAN, ayayayaaaaahhh

CWINDOWSDesktoptarzan.jpg
Tarzan!


What movie Do you Belong in?(many different outcomes!)
brought to you by Quizilla

(comment on this)

8:50 am
Vá! það virkaði næstum alveg :) :) frábært, deginum kalda bjargað ha ha ...
Vaknaði nefnilega full bjartsýn í morgun, fór í nælonsokkabuxur, pils og og og svörtu klósetthælsjólaskóna mína með rósunum á, sem ég er búin að bíða eftir að geta notað þegar voraði. En það er ekki að vora. Þegar ég fór með Matta á leikskólann í morgun fuku einstaka smágerð feimin snjókorn fyrir framan nefið á mér. Svona rétt til þess að segja mér að þeir séu enn á ferð, að enn sé veturinn á staðnum :( svo það er ekki annað en að fara í síðbuxurnar og vetrarskóna aftur. Pakka blómaskónum í skókassann og bíða.... elsku bið...

(comment on this)

8:47 am - tilraun
Sko, nú er ég að herma eftir Arndísi (samnemandi sem sagði mér frá Livejournal), hún var með þennan "quiZ" á sinni síðu og gat svo sett tengill frá niðurstöðunum inn á síðuna. Nú er spurningin? get ég það líka? (alveg örugglega ekki, hef ekki hugmynd um hvernig svona virkar....)



GWTW
Darling, it seems that you belong in Gone with the
Wind; the proper place for a romantic. You
belong in a tumultous world of changes and
opportunities, where your independence paves
the road for your survival. It is trying being
both a cynic and a dreamer, no?


Which Classic Novel do You Belong In?
brought to you by Quizilla

(comment on this)

Wednesday, March 24th, 2004
8:43 am
Er þetta sorglegt eða er þetta bara svona? Ég blogga alein, enginn veit enn að ég er að blogga. Er það sorglegt að sitja og skrifa fyrir engan nema sjálfan sig? Ég veit ekki enn hvort að ég vilji blogga opinberlega og því hef ég engum sagt frá þessu. Hef samt sagt nokkrum að mig langi til þess... bara svona að tékka á þeirra viðhorfum til þessa miðils. Huglaus en ekki duglaus - og ég blogga áfram.

(comment on this)


> previous 20 entries
> top of page
LiveJournal.com